Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

11. nóvember 2009

Tilnefning til Umhverfisveršlauna

Norðursigling hefur verið tilnefnd til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009.

Tilgangur verðlaunanna er að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Þau geti með því orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar. Verðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 15. skiptið.

 

Þessi tilnefning er aðstandendum Norðursiglingar mikil hvatning í því að setja áfram umhverfismál í forgang í hverjum þeim verkefnum sem fyrirtækið vinnur að.

Þess má geta að Knörrinn, fyrsti bátur Norðursiglingar, hlaut umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs Íslands árið 1996.

Það kemur svo í ljós 20. nóvember næstkomandi hver þeirra 27 aðila sem tilnefndir voru hljóta verðlaunin í ár.

 

ÞH

 

Steypireyður blæs

 

Maður og hvalur

 

Skútur í Húsavíkurhöfn


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld