Fréttir Noršursiglingar
19. október 2009
Haustferš Noršursiglingar 2009
Föstudaginn 16. nóvember fór starfsfólk Norðursiglingar í óvissuferð og að þessu sinni varð Mývatnssveitin fyrir valinu. Það var fjörugur hópur sem hittist að morgni á kaffistofunni og fyrir utan beið forlátur fjallabíll frá Rúnari Óskarssyni. Fyrsti við komustaður var Nautadalur sem liggur út frá Námaskarði í átt til Kröflu. Þar hefur átt sér stað mikil uppgræðsla lands og tekist hefur að stöðva mikinn sandblástur sem ógnaði m.a. hraunhellum og grónu landi lengra inni í dalnum.
Því næst lá leiðin upp að Víti við Kröflu og nýjustu borholu svæðisins, holu númer 40. Eftir hádegismat í mötuneyti Kröfluvirkjunar var haldið í Jarðböðin en þar sem sunnanvindurinn blés heldur hressilega var ákveðið að fara heldur í Grjótagjá. Gjáin hefur notið vaxandi vinsælda síðustu ár eftir að hitastig hennar fór að færast heldur nær 40 gráðunum en var áður hátt í 50. Eftir baðið var keyrt upp á Lúdent sem er sprengigígur og varð til í þeytigosi og að gígaröðinni Lúdentsborgum.
Um kvöldið var snæddur kvöldverður á Sel-Hótel Mývatn eftir velheppnaða skoðunar- og skemmtiferð um sveitina.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir teknar í ferðinni.
ÞH
Hraunhellir við Nautadal
Staldrað við við Víti
Inni í vélasal í Kröfluvirkjun
Hlýtt og notalegt í Grjótagjá
Við Lúdentsborgir
Ævintýraleg kvöldbirta við Mývatn
Allur hópurinn uppi á Lúdent



























