Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

23. september 2009

Įrleg haustferš meš Borgarhólsskóla

Árleg haustferð með efstu deild Borgarhólsskóla á Húsavík var farin í dag. Það voru 8., 9. og 10. bekkur sem sigldu og venju samkvæmt fóru tveir yngri bekkirnir á Náttfara en 10. bekkur á skonnortunni Hauk. Að þessu sinni var röðin komin að Flatey en Norðursigling hefur í samvinnu við Borgarhólsskóla útbúið þrenns konar haustferðir svo að allir krakkar á unglingastigi fái að taka þátt í þeim öllum.

 

Á leiðinni fengu krakkarnir fræðslu um flóann, bátana og nánasta umhverfi og lífríkið og í Flatey var farið í gönguferð og komið við í kirkjunni, vitanum og samkomuhúsinu.

 

Á heimleiðinni voru dregin upp segl á skonnortunni Hauk en vindur reyndist ekki nægur til að hæg væri að sigla nema stutta stund. Rétt áður en komið var í höfn, sást hins vegar hrefna og gátu báðir bátar sýnt hana um stund.

 

Meðfylgjandi myndir voru teknar í ferðinni.

 

Haukur og Náttfari láta úr höfn

© Christian Schmidt
Haukur og Náttfari láta úr höfn í blíðskaparveðri

 

Haukur undir seglum

© Karin Gerhartl
Skonnortan Haukur með 2 af alls 6 seglum uppi

 

Náttfari og Haukur við bryggju í Flatey

© Lindsey Albright
Bátarnir liggja við bryggju í Flatey

 

Kirkjan í Flatey ber í Víknafjöllin

© Lindsey Albright
Kirkjan í Flatey fer í Víknafjöllin

 

Vitinn í Flatey

© Lindsey Albright
Krakkarnir skoða vitann í Flatey sem var byggður 1963


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld