Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

6. september 2009

Nżtt ęvintżri hefst

Hildur lagði úr höfn á Húsavík mán. 31. ágúst sl. og er nú á siglingu undan suður strönd Noregs og áætlar að vera komin um hádegi á morgun til Skagen. Ferðin hefur gengið vel í alla staði og báturinn reynst vel og á það reyndi því þeir hrepptu vont veður milli Færeyja og Hjaltlandseyja.
Vegna stormviðvörunar á Norðursjó, töfðust þeir í rúman sólarhring í Leirvík á Hjaltlandseyjum.
 
Í áhöfn eru Einar Ó. Magnússon skipstjóri, Gísli Arnar Guðmundsson vélstjóri, Heimir Harðarson stýrimaður og Hilmar Valur Gunnarsson kokkur/háseti.
Í Færeyjum fengu þeir félagar góðar móttökur þar sem Guðvarður Jónsson tók á móti þeim og má sjá frétt um það hér.
 
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru við brottförina frá Húsavík á mánudaginn var.
 
Hildur siglir_01

Norðursiglingarflotinn - f.v. Knörrinn, Bjössi Sör, Náttfari, Haukur og Hildur (á myndina vantar Garðar)

 

Hildur siglir_02

Skonnortan Haukur og tilvonandi skonnortan Hildur 

 

Hildur siglir_03

 

Hildur siglir_04

Hjónin Hildur og Bjössi Sör við bátshlið

 

Hildur siglir_05_

Áhöfnin - f.v. Einar, Gísli, Himmi og Heimir

 

hildur fer

Hildur siglir úr höfn á Húsavík


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld