Fréttir Noršursiglingar
24. įgśst 2009
Įrshįtķš Noršur-Siglingar
Árshátíð Norður-Siglingar var haldin í síðustu viku venju samkvæmt og voru það tæplega fimmtíu starfsmenn, ásamt mökum, sem tóku þátt í gleðinni. Eins og oft áður var fólki safnað saman á bryggju án þess að hafa hugmynd hvað tæki við. Öllum var svo smalað upp í rútu Rúnars Óskarssonar og haldið af stað suður úr bænum. Ekki leið þó á löngu áður en flestir áttuðu sig á að ferðinni var heitið upp í Mývatnssveit. Þar var fyrsti viðkomustaður Fuglasafn Sigurgeirs auk þess sem fólk gæddi sér á nesti frá Heimabakarí á bökkum Mývatns í blíðskaparveðri.
Því næst var haldið að áningarstað sem var garðurinn hjá heiðurstarfsmönnum Norður-Siglingar, hjónunum Hillu og Bjössa á Strönd. Þar hafði skemmtinefnd komið fyrir garðtjaldi, grilli og tilheyrandi.
Hilla og Bjössi búa svo vel að hafa sjálft Mývatnið í bakgarðinum svo Norður-Siglingarfólk sá sér leik á borði og spreytti sig á kajökum og seglbátnum Sæbjörgu.
Fyrir kvöldmat var einnig boðið upp á göngutúr um Höfða undir styrkri leiðsögn Hillu.
Þegar allir höfðu borðað yfir sig af úrvalskjöti frá Viðbót og meðlæti frá Kidda kokk á Bauknum var efnt til Barsvars að hætti bibba þar sem miðasöluteymið Oddvar og Adrienne bar sigur úr býtum.
Eins og allar góðar samkomur endaði árshátíðin með gítarspili og söng við varðeld.
Hér að neðan fylgja myndir frá þessu ánægjulega kvöldi.
ÞJ



























