Fréttir Noršursiglingar
31. jślķ 2009
2000 feršir fyrir Noršur-Siglingu
Í gær voru ákveðin tímamót í sögu Norður-Siglingar þegar Hrólfur Þórhallsson skipstjóri kom í land úr tvö þúsundustu hvalaskoðunarferðinni. Hrólfur hóf störf hjá Norður-Siglingu árið 2000 en áður hafði hann unnið tvö sumur á hvalaskoðunarbátnum Moby Dick og eru þær ferðir ekki taldar með. Það er því óhætt að segja að fáir ef nokkrir hvalaskoðunarskipstjórar státi af annarri eins reynslu og Hrólfur. Hann er líklega sá sem hefur flesta hvalina séð, meðal annars var það hann sem fann búrhvali í eina skiptið sem það hefur gerst síðan Norður-Sigling hóf hvalaskoðun. Minnistæðust er honum þó hin fræga ferð frá því í fyrrasumar þegar hópur háhyrninga drap hrefnu við hlið bátsins.
Reynsla Hrólfs kom sér aldeilis vel í tvöþúsundustu ferðinni þar sem aðstæður voru erfiðar, mikil rigning og skyggni slæmt en honum tókst að finna eina hrefnu sem sýndi sig ágætlega.
Í tilefni þessa merka áfanga fagnaði starfsfólk Norður-Siglingar Hrólfi þegar hann kom í land og heiðraði hann með gjöf. Hrólfur hafði þó ekki mikinn tíma til að fagna því hann þurfti að skunda í ferð númer 2001.
Það er sannarlega ómetanlegt að hafa fólk á borð við Hrólf í sarfsliði Norður-Siglingar og vonandi munum við njóta krafta hans sem lengst.
ÞJ



























