Fréttir Noršursiglingar
27. jślķ 2009
Vel heppnašir Sęnskir dagar og Męrudagar afstašnir
Hinir árlegu sænsku dagar og mærudagar fóru fram síðast liðna viku með glæsibrag. Þrátt fyrir slæma veðurspá á tímabili setti veðrið sem betur fer ekki strik í reikninginn ef undanskilinn er ansi votur og vindasamur fimmtudagur sem varð til þess að Norður-Sigling þurfti að aflýsa árlegri landnámssiglingu í Náttfaravíkur. Að öðru leyti hékk hann að mestu þurr og jafnvel sást til sólar annað slagið.
Eins og síðustu ár fór mikill hluti hátíðarinnar fram fyrir neðan bakka og iðaði hafnarsvæðið af mannlífi. Tónlistarviðburðir voru hvern einasta dag á Gamla Bauk frá mánudegi til sunnudags og var aðsóknin með eindæmum góð og máttu oft sáttir þröngt sitja.
Gamli Baukur og Norður-Sigling þakka öllum þeim fjölmörgu sem mættu á svæðið fyrir skemmtilega viku.
ÞJ



























