Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

2. jśnķ 2009

Slippurinn į Akureyri ķ Flateyjarferš

Samstarf Norður-Siglingar og Slippstöðvarinnar á Akureyri hefur verið gott í gegnum árin og hefur verið vel tekið á móti bátum Norður-Siglingar frá upphafi rekstrar. Á hvítasunnudag sótti Slippurinn svo Norður-Siglingu heim og sigldu um borð í Náttfara til Flateyjar. Ferðin var farin í samstarfi við Gamla Bauk sem sá um grillmat fyrir hópinn þegar í eyjuna var komið.

Blíðskaparveður var þennan dag og heppnaðist ferðin  með eindæmum vel. Á leiðinni út sást höfrungahópur sem vakti mikla lukku farþega.

 

Ferðir sem þessar eru tilvaldar fyrir fyrirtækjahópa en heimsóknir í Flatey valda sjaldan vonbrigðum og ekki spillir fyrir að geta gætt sér á gómsætum grillmat frá Bauknum.

Eftirfarandi myndir lýsa auðvitað miklu betur stemningunni á hvítasunnudag.

 

ÞJ

 

höfrungur
Höfrungur leikur sér við stefni Náttfara 
flateyslippur-1
Kiddi kokkur grillaði ofan í hópinn
Matast
Það er ekki amalegt að borða við borðstokkinn og virða
fyrir sér útsýnið
Flatey
Flatey á Skjálfanda

Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunumSkrįš gęšavottun frį Lloyds


Mynd

  • Nįttfari aš halda sér

  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld

Fįnar

In English