Fréttir Noršursiglingar
19. maķ 2009
Hvalaskólinn ķ siglingu
Hópur ungmenna úr Borgarhólsskóla hélt út á Skjálfanda í morgun. Hópurinn tekur þátt í verkefni sem
Þórhildur Jónsdóttir hefur forgöngu um en verkefnið er árviss viðburður sem nýtur stöðugt aukinna vinsælda. Krakkarnir voru alsæl með ferðina enda sáust bæði hnúfubakur og hrefna en einnig var rennt fyrir fisk. Í framhaldi af ferðinni munu krakkarnir fræðast heilmikið um lífríki sjávar, meðal annars skoða nánar æti fiskanna sem veiddir voru.
Síðar í dag er von á skólahóp úr Eyjafirði í siglingu en hvalaskoðun og sjóstöng verður sífellt vinsælli kostur fyrir skólahópa sem eru um það bil að ljúka vetrinum.
Meðfylgjandi myndir tók Halla Marín leiðsögumaður í ferðinni í morgun.
ÞJ



























