Fréttir Noršursiglingar
1. maķ 2009
5 tegundir žaš sem af er sumri!
Frá því að Norðursigling hóf hvalaskoðunarferðir í ár, þann 13. apríl síðast liðinn, hafa sést í heildina 5 ólíkar hvalategundir: hnísur, höfrungar, hrefnur, háhyrningar og nú í morgun mætti fyrsti hnúfubakur sumarsins inn í flóa.
Mjög líflegt var í flóanum í morgun því auk hnúfubaksins sáust þrjár hrefnur og fuglalíf var mjög fjölskrúðugt, sáust meðal annars súlur og fjöldi lunda.
Frekari upplýsingar má fá í síma 464 7272 eða í tölvupósti info@nordursigling.is og einnig er hægt að bóka hér á vefnum.
Eftirfarandi eru myndir úr ferðinni í morgun.
ÞJ



























