Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

21. aprķl 2009

Hįhyrningar ķ Skjįlfanda!

Áhöfn og farþegar Náttfara fundu hóp af háhyrningum í flóanum fyrr í dag. Hópurinn taldi um 6-8 dýr sem voru greinilega í æti en gáfu sér þó tíma til að sýna sig fyrir himinlifandi ferðamönnum. Fyrr í ferðinni höfðu einnig sést nokkrir höfrungar.

 

Háhyrningar eru tannhvalir, 6-9 metra langir og vega um það bil 3-9 tonn. Þeir eru þó best þekktir á hvítum deplum og ákaflega háum bakugga. Frægasti háhyrningur fyrr og síðar var auðvitað hinn íslenski Keikó.

 

Á meðan veður leyfir verður siglt einu sinni á dag út apríl en í maí verður boðið upp á tvær ferðir á dag. Nánari upplýsingar má fá í síma 4647272 eða í gegnum tölvupóst info@nordursigling.is

 

Eftirfarandi myndir tók Þórdís leiðsögumaður í ferðinni í dag.

 

ÞJ

 

 

hahyrn-1
Háhyrningarnir sýndu sig býsna vel eins og sjá má

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

hahyrn-2
Hér sést vel hinn geysihái bakuggi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

hahyrn-3
Farþegarnir í nálægð við náttúruna

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

hahyrn-4
Blástur dýranna er býsna skýr

Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld