Fréttir Noršursiglingar
14. aprķl 2009
Fyrsta ferš įrsins
Í gær hélt Náttfari í fyrstu ferð ársins með 24 farþega um borð. Eins og við má búast í apríl var nokkuð kalt en logn og bjart svo Skjálfandi skartaði sínu fegursta. Í ferðinni sást lítil höfrungafjölskylda og voru farþegarnir hinir ánægðustu að fá tækifæri til að sjá höfrunga í sínu náttúrulega umhverfi. Fuglalíf var með ágætum í flóanum og mátti meðal annars sjá nokkra lunda, súlu og töluvert af svartfugli. Vonandi munu stærri hvalir einnig leggja leið sína inn í flóann á næstunni.
Ef veður leyfir er áætlað að fara eina ferð á dag út apríl, klukkan 13:30.
Frekari upplýsingar má fá í síma 4647272 eða á tölvupóstfanginu info@nordursigling.is
ÞJ



























