Fréttir Noršursiglingar
13. mars 2009
Bluenose į Hśsavķk
Innan skamms mun líkan af hinni frægu, kanadísku skonnortu, Bluenose, bætast í flota Norðursiglingar.
Líkanið er smíðað af Árna Sör sem er bróðir heiðurstarfsmanns Norðursiglingar, Bjössa Sör.
Hin upprunalega skonnorta Bluenose var hönnuð af William Roué og ýtt úr vör í fyrsta sinn 26. mars 1921 og er frægt tákn í Kanada en teikningu hennar má meðal annars finna á kanadískum frímerkjum. Bluenose var fengsælt fiskiskip en frægari var hún fyrir 17 ára samfellda sigurgöngu í siglingakeppnum. Bluenose náði ekki nema 25 ára aldri en hún sökk undan strönd Haiti árið 1946.
Líkanið er hið glæsilegasta og munu gestir Norðursiglingar á komandi tímum eiga þess kost að berja gripinn augum.
ÞE


























