Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

3. desember 2008

"Kreppuknśs Noršursiglingar"

Ærið tilefni þykir þessa dagana til að þjappa starfsfólki fyrirtækja saman og þá sömuleiðis fjölskyldum þeirra og efndi Norðursigling m.a. þess vegna til svokallaðs "Kreppuknús" sl. föstudagskvöld. 

 

Tilefnin voru reyndar fleiri en í miðri kreppu hefur Norðursigling unnið við að koma sér fyrir á nýju verkstæði neðan Bakkans eða í húsi því er nefnt er Gamli Foss og lúrir neðan í bakkanum framan við kirkjuna. Samhliða því hefur verið unnið að endurbótum þriggja báta fyrirtækisins eða skonnortunni Hauk, Knerrinum og síðast en ekki síst er unnið að stórum áfanga í Garðari, stærsta bát Norðursiglingar.  Meira verður fjallað um þessar framkvæmdir á næstu dögum. 

 

Kreppuknúsið sjálft hófst á því að 26 starfsmenn og makar hittust í "Gamla Fossi" sem hafði verið skreyttur af tilefninu og þar var snæddur forréttur, síld, egg, kartöflur og rúgbrauð ásamt skolvökva.  Að því loknu var skundað á Gamla Bauk þar sem dýrindis nautasteik var reidd fram ásamt með- og eftirlæti.   Hópurinn sat í hring og fengu margar stórkostlegar sögur að fjúka og var varla hægt að sjá að nokkur kreppuhrollur væri í liðinu.  Þrátt fyrir að ekki hafi verið neinum skemmtiatriðum lofað brugðu nokkrir á leik með ýmsar þrautir og leiki við mikla kátínu viðstaddra.

 

Látum hér fylgja með nokkrar myndir frá kvöldinu. 

 

 

 

Við andyri Gamla Foss 
Við anddyri Gamla Foss

 

Hefilbekkur, nytsamlegur til margra hluta 
Hefilbekkir eru til margra hluta nytsamlegir


Kósý stemmari á verkstæðinu 
Kósý stemmari á verkstæðinu

 

Við borðhaldið 

Við borðhaldið

 

Gamli leggur  

Gamli leggur "skæraþrautina" fyrir samkomuna

 

Galsi í mannskapnum

Galsi í mannskapnum


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld