Fréttir Noršursiglingar
14. október 2008
Hvalaskošun ķ október
Yfirstandandi vertíð hefur verið Norður-Siglingu sú besta frá upphafi og jafnframt sú lengsta. Fyrsta ferð sumarsins var farin 19. apríl og nú um miðjan október erum við enn að sigla með ferðamenn út á Skjálfanda í leit að hvölum.
10. okt. sl. lögðu ferðamenn frá 4 löndum leið sína með Norður-Siglingu út á Skjálfandaflóa en það voru Hollendingar, Svisslendingar, Licthensteinbúar og Rússar. Á þessum árstíma getur verið erfitt að segja til um hvort hvalir muni sjást en í þessari ferð sáust bæði Hrefna og Hnúfubakur. Daginn eftir var bætt um betur þegar skoðaðar voru 2 Hrefnur og 3 Hnúfubakar skammt frá höfninni!
Í dag er veður harla gott, hægur vindur og tært loft og voru það bjartsýnir ferðamenn frá Danmörku og Hollandi sem lögðu úr höfn fyrir 2 tímum síðan. Fyrir stundu fengum við þær fréttir frá Hrólfi skipstjóra og Þórdísi leiðsögumanni að þau hefðu nú þegar séð 1 Hrefnu og a.m.k. 4 Hnúfubaka. Hvalaveislan heldur áfram!
Áætlun Norður-Siglingar stendur til 20. okt ef veður og aðstæður leyfa. Fyrir bókanir og frekari upplýsingar bendum við á símanúmer okkar, 464 7272.
Meðflygjandi myndir tók Marion Vogt frá Lichtenstein 10. okt. og birtast hér með góðfúslegur leyfi hennar.
ÞH



























