Fréttir Noršursiglingar
3. október 2008
Strandmenningarferš aš hausti
Það var hópur glaðlyndra Norðursiglingarstarfsmanna sem safnaðist saman í hellirigningu við Svartabakka, skrifstofur fyrirtækisins, föstudagsmorguninn 26. September sl.
Tilefnið var skemmti & strandmenningarferð vetarstarfsfólks Norðursiglingar um norðurhluta Norðurþings sem kallaði sömuleiðis á að farið yrði yfir fríríkið Tjörnes. Bílstjórinn Rúnar Óskarsson hafði það á orði að einhverjir hefðu hætt við ferð í slíku slagveðri en engan bilbug var á hópnum að finna og brunað var af stað.
Í fríríkinu Tjörnesi var Sigurbjörn Sörensson, Bjössi Sör leiðsögumaður og hafði hann frá mörgu áhugaverðu að segja enda ólst hann þar upp að hluta; á Kvíslarhóli og Voladal. Fyrsta stopp var svo hjá Alla á Máná sem sýndi okkur sitt skemmtilega minjasafn og tók ekki eyri fyrir það og viljum við nota tækifærið og þakka honum fyrir gestrisnina.
Uppúr því var haldið fyrir nesið og aftur komið inn í Norðurþing eða Kelduhverfi þar sem höfðingi þess svæðis, Hreiðar Olgeirsson bauð til stofu að Sultum. Þar á Hreiddi glæsilegt sumarhús sem m.a. hýsir safn eitt mikið sem samanstendur af kopar og postulínsbjöllum frá ýmsum hornum heimsins. Þegar þarna var komið sögu hafði dregið úr rigningunni og farið að létta til.
Eftir Sultir var Gljúfrastofa í Ásbyrgi skoðuð og rætt við Þjóðgarðs og landvörð um landsins gagn og nauðsynjar en að því loknu var haldið úr Kelduneshreppi hinum gamla inn í Öxarfjarðarhrepp og sest að snæðingi á óðali Einars Magnússonar en þar á hann snoturt bjálkahús ásamt því að hann stendur í uppgerð á eldra húsi og virkjunarframkvæmdum. Þegar þarna var komið sögu var veðrið orðið með eindæmum gott og sól farinn að skína í Öxarfjarðarheiði.
Eftir matinn var svo haldið áleiðis að Núpskötlu og sagði leiðsagði Einar hópnum norður eftir Sléttunni með smá hring um Kópasker en Einar er fæddur á svæðinu og hefur búið þar um lengri tíma á árum áður og hafði líka frá mörgu áhugaverðu að segja. Frá Núpskötlu var svo gengið að Rauðanúpsvita í rjómablíðu og líklega hefur því lægðarmiðjan verið á réttum stað á réttum tíma því þetta var lengsta labb ferðarinnar.
Sör sem var manna fráastur og fljótari en aðrir að skoða vitann og björgin.
Jóhannesdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Hörður Sigurbjarnarson, Einar
Magnússon, Rósa Bachman, Hrólfur Þórhallsson og Hreiðar Olgeirsson.
Næst var haldið austur eftir Melrakkasléttunni, þessari einu túndru Íslands og farið var í Hraunhafnartangarvita sem stendur á samnefndum tanga sem í flestum bókum er sagður nyrsti oddi landsins. Eylítið vestar stendur Rifstangi, sem trúlega nær norðar en Hraunhafnartangi en býr bara ekki svo vel að eiga svona fínan vita. Látum myndirnar tala sínu máli um heimsókn þá.
Raufarhöfn var næsti viðkomustaður en þar bjóst Erlingur hótelstjóri við okkur og eftir stutta bæjarskoðun og fordrykk sem drukkinn var meðan Erlingur kynnti heimskautagerðið mikla sem rísa mun á næstu árum var sest að snæðingi. Það er jafnan ekki í kot vísað á Hótel Norðurljósum og fengum við frábært fiskihlaðborð sem menn gerðu góð skil ásamt eylitlu víni áður en haldið var aftur suður á bóginn.
Heimferðin gekk ljómandi þrátt fyrir hávaða rok og ausandi rigningu. Bjössi Sör fór á kostum með hljóðnemann og rúlluðu sögurnar uppúr honum hver önnur skemmtilegri og þutu kílómetrarnir 150 á misjöfnum vegum Norðurþings hraðar hjá en ella. Dagur var að kveldi kominn og allir komnir kátir aftur á Húsavíkina.
HH



























