Fréttir Noršursiglingar
8. jślķ 2008
Steypireyšar fundnar į nż
Í morgun fundust þrjár Steypireyðar hér í Skjálfandaflóa. Það var heldur betur góð upplyfting að sjá þessar risastóru skepnur eftir leiðinda þoku síðustu tvo daga.
Farþegi um borð í skonnortunni Hauk að horfa á eina af
Steypireyðunum
Steypireyðunum
Við höfum ekki séð Steypireyðar hér í flóanum síðastliðna tíu daga og því voru menn kampakátir þegar þær fundust í morgun. Vel gekk að nálgast dýrin og sýna þau.
Tvær Steypur að synda hlið við hlið
Nú er bara að vona að Steypurnar staldri hérna við í nokkra daga. Einar Magnússon skipstjóri tók meðfylgjandi myndir.
Himmi


























