Fréttir Noršursiglingar
3. jślķ 2008
Blķšu vešur
Eftir frekar leiðinlegt veður undanfarna daga, sem einkennst hefur af kaldri norðanátt, rigningu og þoku létti aftur til hér á Húsavík í morgun. Góð mæting var í morgunferðina okkar og fórum við út með alls 115 manns kl. 10:00 á Náttfara og Bjössa Sör.
Við þurftum ekki að sigla mjög langt út á flóann áður en við fundum tvo Hnúfubaka sem svömluðu í rólegheitunum rétt við bátana. Yfirleitt koma Hnúfubakarnir 4-6 sinnum upp til að anda áður en þeir demba sér niður í djúp kaf í leit að æti. Þessir félagar voru þó ekki á þeim buxunum, heldur komu mjög oft upp og fóru yfirleitt ekki nema ca. 10 m. niður undir yfirborðið þann tíma sem við vorum að skoða þá.
Eftir að hafa kvatt þessa skemmtilegu Hnúfubaka þurftum við ekki að sigla nema í nokkrar mínútur áður en við rákumst á feyki stóran Höfrungahóp. Höfrungarnir sýndu listir sínar í þó nokkurn tíma í kringum bátana, farþegunum til mikillar gleði.
þarna vantar aðeins upp á snerpuna
Veðurspáin er gríðarlega jákvæð fyrir næstu daga þar sem suðlægar áttir og sól verða í aðalhlutverki. Það er því alveg gráupplagt að heimsækja okkur og skella sér í hvalaskoðunarferð út á Skjálfandaflóa.



























