Fréttir Noršursiglingar
2. jślķ 2008
Blįir Skuggar ķ kvöld
Bláir skuggar er kvartett saxófónsleikarans Sigurðar Flosasonar, en auk hans skipa kvartettinn þjóðsagnapersónur í íslenskri tónlist og framverðir elstu starfandi kynslóðar íslenskra jazztónlistarmanna, þeir Þórir Baldursson og Hammond orgel, Jón Páll Bjarnason á gítar og Pétur Östlund á trommur.
Tónlistin sem Bláir Skuggar flytja er aðgengilegur og skemmtilegur samruni jazz- og blús tónlistar þar sem spilagleði er í fyrirrúmi. Kvartettinn hefur sent frá sér tvo diska; Blátt ljós og Bláa skugga sem báðir hafa fengið frábæra dóma og góða sölu. Þess má geta að Sigurður Flosason hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í fyrra sem jazztónlistarflytjandi ársins.
Tónleikarnir byrja kl. 21:00. Látið þetta ekki fram hjá ykkur fara. Mætið á Gamla Bauk og njótið góðrar tónlistar. Sem fyrr segir er frítt inn á þessa tónleika í boða Gamla Bauks.



























