Fréttir Noršursiglingar
18. jśnķ 2008
Sęršur Hnśfubakur ķ Skjįlfanda
Hnúfubakurinn hefur samt sem áður verið mjög líflegur og er greinilega í nægu æti. Hann hefur ekki sýnt neina hegðun sem bendir til þess að sárið sé að angra hann mikið. Það er nokkuð ljóst að hvalurinn hefur flækst í veiðafærum eða svo kölluðum drauganetum (net sem eru á reki um hafið) og fengið sár eftir að hafa slitið sig lausan.
Það er alltaf vont að sjá sært dýr en þar sem hann virðist vera hraustlegur og í nægu æti þá teljum við að hann sé ekki að upplifa mikinn sársauka eða óþægindi vegna sársins.
Við vonum að þessi Hnúfubakur verði hérna hjá okkur í flóanum áfram og hann nái sér fljótt af sárum sínum.



























