Fréttir Noršursiglingar
12. jśnķ 2008
Žrjįr hvataferšir į laugardaginn
Auk þeirra fjögurra áætlunarferða sem við bjóðum daglega núna í júní þá komu í heimsókn til okkar þrjú fyrirtæki, Eimskip, Húnagull og Flugfélag Íslands með starfsmenn sína í skemmtisiglingar.
Starfsfólk Eimskips fór um borð í Bjössa Sör og sigldi vestur í Flatey. Þar dvaldist hópurinn í nokkra klukkutíma, slegið var upp grilli og búinn til blakvöllur svo eitthvað sé nefnt. Hópurinn skemmti sér
gríðarlega vel og ekki síður á leiðinni heim aftur.
Starfsmenn Flugfélags Íslands fóru í hvalaskoðun á Náttfara og starfsmenn Húnagulls fóru sömuleiðis í hvalaskoðun á skonnortunni Hauk.
Þennan dag fundust í flóanum Hnísur, Höfrungar, Hrefnur og Hnúfubakur þannig að allir gestir okkar komu skælbrosandi í land eftir vel heppnaðar siglingar.
Við hjá Norður-Siglingu höfum mjög mikla reynslu af skemmtisiglingum fyrir stóra sem smáa hópa og tökum alltaf vel á móti beiðnum um slíkar siglingar. Hægt er að skoða hugmyndir um skemmtisiglingar hér.



























