Fréttir Noršursiglingar
4. jśnķ 2008
Steypireyšar ķ Skjįlfanda
Náttfari fór í hvalaskoðun kl. 10.00 í morgun með 56 farþega. Óhætt er að segja að sú ferð hafi verið árangursrík því áhöfnin fann tvær Steypireyðar í ferðinni. Náttafari er nú á heimleið úr morgunferðinni en næstu hvalaskoðunarferðir eru kl. 13:30, 17:00 og 20:15 í kvöld.
Þetta er í fyrsta skipti í sumar sem þessi stærstu dýr veraldar heiðra okkur með nærveru sinni.
Meiri upplýsingar og vonandi myndir koma hingað inn seinna í dag.



























