Fréttir Noršursiglingar
2. jśnķ 2008
Skemmtisigling į sjómannadag
Í gær, Sjómannadag, bauð Norður-Sigling bæjarbúum sem og gestum Húsavíkur upp á skemmtisiglingu á Náttfara. Gríðarlega góð mæting var í siglinguna og fóru alls um 140 manns um borð í Náttfara.
Gestir að ganga um borð í Náttfara
Blíðskaparveður var í gær og tókst siglingin í alla staði mjög vel. Tekinn var góður hringur á Skjálfanda og sást meira að segja ein Hrefna í ferðinni.
Norður-Sigling vill nota tækifærið og óska öllum sjómönnum til hamingju með daginn í gær.
Þéttskipaður Náttfari úti á Skjálfanda
Einar, einn af skipstjórum Norður-Siglingar ásamt sonum sínum á Trausta
Náttfari kominn að bryggju eftir vel heppnaða skemmtisiglingu



























