Fréttir Noršursiglingar
29. maķ 2008
Sjaldgęf en skemmtileg sjón
Í gærdag fannst stór og myndarleg Hrefna vestur undir Kinnarfjöllum þar sem hún dólaði í rólegheitum ásamt kálfi sínum. Það er alls ekki algengt að sjá Hrefnu með kálf hér í Skjálfanda og því var mikil gleði sem greip um sig í Náttfara, bæði meðal áhafnar sem og farþega. Kálfurinn var sprækur og mjög forvitinn og nálgaðist bátinn óhikað. Mamman fylgdist vel með og vildi helst ekki hleypa kálfi sínum of nærri bátnum þannig að alltaf þegar hvalirnir komu upp til að anda þá var mamman nær bátnum heldur en kálfurinn. Eftir að hafa skoðað þau í góða stund ákváðum við að trufla þau ekki lengur og sigldum í burtu. Við vonum innilega að þetta hafi ekki verið í síðasta skipti sem við sjáum litla kálfinn og mömmuna í sumar.



























