Fréttir Noršursiglingar
26. maķ 2008
Fullt af hvölum ķ bongó blķšu
Bjössi Sör sigldi út á Skjálfanda flóa í morgun með rúmlega 30 farþega. Óhætt er að segja að þessi ferð sé ein sú besta sem af er sumri. Veðurguðirnir hafa leikið við Húsavík síðustu daga og dagurinn í dag er þar engin undantekning. Sól og blíða og hitamælir sýndi rétt rúmlega 16°C núna kl 13:00.
Fljótlega eftir að komið var út á spegilsléttan flóann fór að sjást til hvala. Alls voru skoðaðir þrír Hnúfubakar, þrjár Hrefnur, hópur af Höfrungum og fullt af Hnísum skutu upp kollinum víðsvegar um flóann.
Það voru því kampakátir farþegar sem komu í land, ásamt skipstjóranum Hrólfi og leiðsögustúlkunni Þórdísi eftir frábæra hvalaskoðunar ferð í veðurblíðunni.
Veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi blíðviðri hér á Húsavík og ekki er nokkur sjáanleg ástæða fyrir hvalina að yfirgefa Skjálfanda flóa, því eru næstu dagar ákjósanlegir til að bregða sér í hvalaskoðun með okkur hjá Norður-Siglingu á Húsavík.
Himmi



























