Fréttir Noršursiglingar
21. maķ 2008
Hvalaskólinn ķ heimsókn
Það voru lífleg og fróðleiksþyrst ungmenni sem heimsóttu Norður-Siglingu upp úr hádegi í gær. Fóru þau í hvalaskoðun, á sjóstöng og skoðuðu Lundey. Tilgangurinn, auk þess að upplifa undur Skjálfanda, var að vinna að verkefni sem tengist nýstofnuðum Hvalaskóla sem fyrrverandi leiðsögumaður Norður-Siglingar Þórhildur Jónsdóttir stendur fyrir.
Einn af kennurum hópsins, Hjálmar Bogi Hafliðason sendi okkur eftir farandi bréf sem við birtum hér í heild sinni.
Nemendur 5. bekkjar hafa undanfarið verið í Hvalaskólanum en það er hluti af Umhverfisskólanum.
Það er Þórhildur Jónsdóttir sem veitir Hvalaskólanum forstöðu. Á mánudaginn fóru nemendur í vísinda- og
rannsóknarferð á Hvalasafnið. Í skólanum var gengið út frá þeirri lykispurningu „af hverju koma hvalirnir í Skjálfandaflóa og hvað eru þeir að gera hér“? Á Hvalasafninu fengu nemendur spurningalista sem átti að svara samkvæmt þeim upplýsingum sem eru þar á veggjum. Einnig fóru þeir á fyrirlestur hjá forstöðumanni safnsins um hvali, hegðun þeirra, fæðu o.fl.
Í gær fóru nemendur ásamt Þórhildi og starfsfólki skólans í hvalaskoðun. Veður var ágætt, logn og stillt en þó vantaði sólina. Farið var á bátnum Bjössa Sör frá Norðursiglingu. Það var Þórunn Harðardóttir sem var
leiðsögumaðurinn okkar og Hrólfur nokkur skipstjóri. Fyrsta var siglt vestur að Kinnarfjöllum á hvalaslóðir.
Ekki leið á löngu þegar sá í fyrsta hvalinn en það var hrefna. Nemendur áttu að greina hvaða hvalir þarna hefði verið á ferð og nýta sér þær upplýsingar sem þeir bjuggu yfir. Síðar sást í hnúfubak og var það tilkomumikil sjón.
Seinna lá leiðin að Lundey og á leiðinni sáust hnísur stökkva upp úr sjónum og var það mjög skemmtilegt. Á leiðinni
að Lundey var borðað nesti, samlokur og mjólk. Nokkrir nemenda höfðu þá lagst afsíðis eða létu vindinn blása um sig vegna sjóveiki. Þegar kom að Lundey var rennt fyrir fisk og aflinn var einn ufsi. Var hann skorinn, magainnihaldið tekið sem á að rannsaka síðar. Fiskurinn var svo rannsakaður, augasteinn skoðaður o.fl. Þarna fór sólin að skína og íbúar eyjarinnar, lundinn að láta mikið á sér bera. Á leið heim til Húsavíkur bauð Norðursigling upp á kakó og kanilsnúð í sól og blíðu. Allir komu heim sáttir og glaðir um nónbil eftir góða, skemmtilega og árangursríka siglingu.
Á dag var svo úrvinnsla gagna, búið til plakat með ýmsum upplýsingum um hvali. Þórhildur kom í heimsókn í skólann og vann með okkur. Vonandi er Hvalaskólinn búinn að festa sig í sessi hérna í skólanum hjá okkur en þetta er afar skemmtilegt tækifæri fyrir nemendur að þekkja umhverfi sitt, flóann sinn og um leið að þroska sjálfan sig.
Hjálmar Bogi



























