Fréttir Noršursiglingar
20. maķ 2008
Fyrsta ferš Nįttfara sumariš 2008
Náttfari fór í morgun sína fyrstu hvalaskoðunarferð þetta sumarið, með stóran og glabeittan hóp skólakrakka frá Hofsósi sem og þónokkra erlenda ferðalanga.
Ferðin heppnaðist í alla staði mjög vel og umtalsvert líf var í flóanum. Áhafnarmeðlimir, í samvinnu við farþega, tókst að koma auga á þrjár tegundir hvala, hnúfubaka, hrefnur og hnísur.
Í vetur var komið fyrir nýrri aðstöðu fyrir skipstjórana um borð í Náttfara. Aðstaðan er í 9 metra hæð og þaðan geta þeir stýrt bátnum og hafa óskert
útsýni hringin í kringum bátinn. Þessi nýja aðstaða eykur bæði skilvirkni við leit að hvölum sem og bætir árangurinn til muna.
Um leið minnkar þessi aðstaða skipstjórana hættuna á að hvalirnir séu truflaðir þegar reynt er að nálgast þá.
Samskonar aðstaða er búin að vera á Knerrinum og Bjössa Sör undanfarin ár og hefur virkað ákaflega vel.
Þannig að núna er allur floti Norður-Siglingar útbúinn á þann hátt að skipstjórar geti stýrt bátum sínum undir beru lofti.



























