Fréttir Noršursiglingar
14. maķ 2008
Glęsileg afmęlishelgi Bauksins
Á föstudeginum var gestum og gangandi boðið upp á kaffi, kakó og köku.
Síðasta helgi var hin eiginlega afmælishelgi Gamla Bauks en á föstudaginn 9. maí voru nákvæmlega 10 ár liðin frá því að fyrstu gestirnir skunduðu á Baukinn.
Mikið var um að vera og voru húsvískir listamenn í brennidepli sjálfa afmælishelgina. Föstudagurinn byrjaði reyndar á því að boðið var upp á glæsilegt hádegishlaðborð sem vel var mætt í og þáðu margir gestanna drykki með í boði hússins, m.a. gylltan mjöð í Stóra og Litla Hákona. Í eftirmiðdaginn var svo gestum og gangandi boðið upp á köku og heita drykki og þáðu margir bæjarbúar að kíkja inn úr nepjunni og ylja sér.
S.O.S!!!
Um kvöldið var svo komið að því að stíga dansinn og hið stórskemmtilega og lífsglaða band S.O.S. eða Stebbi og strákarnir (Stebbi Brasi, Addi Lögga, Unnsteinn Læknir, Daníel Borgþórs, Raggi Rosalegi og Jósi Bróðir sem reyndar var á sjó og komst ekki) sáu um stuðið. Baukurinn bauð á ball og var bæði fjölmennt og góðmennt langt fram eftir nóttu og menn í banastuði. Þegar vel var liðið á kvöldið hafði fjölgað um 3 í sveitinni en þá var Guðni Braga mættur við hljómborðið og Kiddi Halldórs og Ína Valgerður komin með hljóðnema í hönd.
Gallakvöld og Ljótir Hálfvitar
Á laugardagskvöldinu var ekki síður mikið lagt undir en á föstudagskvöldinu en þá var komið að Gallakvöldinu svokallaða þar sem Ljótu hálfvitarnir sáu um skemmtilegheit og tónlist ásamt svo Kidda Halldórs sem kom sterkur inn að loknum tónleikum.
Matti kokkur ásamt dyggum aðstoðarmönnum í eldhúsinu galdraði svo fram einhverja þá mestu veislu sem sögur fara af í héraði en þar var um að ræða humar í forrétt, dádýr í aðalrétt og bananaeplaböku í eftirrétt. Þessari stórbrotnu máltíð vippaði svo Sunna veitingastjóri ásamt samstilltum þjónum fram á augabragði til 70 veislugesta sem gerðu þessari afmælismáltíð góð skil og skoluðu niður með öli og víni í boði hússins.
Ljótu hálfvitarnir eru þekktir fyrir flest annað en leiðindi og þetta kvöld var enginn undantekning nema ef vera skildi í hina áttina en þeir fóru algerlega á kostum og virtust sjálfir skemmta sér vel enda á heimavelli og aufúsugestir á Gamla Bauk. Hálfvitarnir frumfluttu þetta kvöld splunkunýtt efni sem væntanlega fer á nýja plötu síðar á árinu og af viðbrögðum áhorfenda að dæma eru þeir klárlega að halda sér. Einnig var flutt töluvert magn af smellnum "smalavísum" (einkennis eða hirðkveðskap Hálfvitanna) fluttar þarna er flestar tengdust Bauknum og Húsavík. Hér eru tvö dæmi:
Gott er að eiga í horni hauk
Ef heima mér leiðist
Ég glaðbeittur skombera á Gamla bauk
Fór ég á baukinn og fékk mér smá
En fann enga peninga
“Skrifaðu þetta á Heimi H.”
Að loknum tónleikum tók annar góðkunningi Bauksa, Kiddi Halldórs við og má segja að trúbadúrsstarf hans hafi breyst í það að stjórna hljómsveit þar sem Hálfvitar létu ekki sitt ekki liggja og spiluðu með Kidda undir dansi fram á morgun. Verður á engan hallað þó nefndir verði þar trymbillinn Aggi og bassaleikarinn Baldur sem stóðu vaktina.
Ooog fá sér!
Í tilefni dagsins færðu Hálfvitar svo Gamla Bauk gjöf en hún var í raun í orði en ekki á borði eða í raun slagorðið góðkunna "...ooog fá sér". Slagorðið var mikið notað og ósjaldan sem einn byrjaði með djúpum tón einhversstaðar í salnum "ooooooog..." sem síðan magnaðist og í lokinn tók allur salurinn undir "FÁÁ SÉÉR!!". Svo er bara spurning hvernig þetta kemur til með að líta út á nýjum búningum yngri flokka Völsungs í fótboltanum í sumar.
Sunnudagskvöldið eða Gunnahvítasunnudagur eins og heyrðist fleygt á Hálfvitakvöldinu var engin undantekning á gleðinni þar sem eitthvað skyldi vera fyrir alla á Bauknum Þessa helgina. Það var því plötusnúðurinn Jakob Pálmi Pálmason sem þandi græjurnar fyrir dansþyrst ungmenni í reyk og ljósa"showi" fram á rauða nótt og sló þar með botninn í glæsilega dagskrá afmælishelgarinnar.
Þakkir
Eigendum og starfsfólki "Bauksa" er eftir helgina efst í huga mikið þakklæti til allra sem sóttu Baukinn heim þessa helgina en þeir voru trúlega um 600 gestirnir sem litu inn yfir helgina. Ekki síður kærar þakki til allra frábæru listamannanna sem gerðu þessa 10 ára afmælishelgi eins frábæra og raun ber vitni!
HH



























