Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

18. júní 2003

Bjössi Sör tekinn í notkun


Bjössi Sör var smíðaður í skipasmíðastöð KEA og var síðasti báturinn sem hljóp af stokkunum hjá þeirri skipasmíðastöð. Hann er 28 tonn að stærð og var lengst af gerður út á Eyjafirði undir nöfnunum Sólrún og Naustavík og þá að mestu til hrefnuveiða. Báturinn var keyptur af Norður-Siglingu sl. sumar og eftir gagngerar endurbætur fór báturinn sínar fyrstu ferðir laugardaginn 14. júní þegar hann sigldi með félaga Ferðafélags Akureyrar í Flatey á Skjálfanda og svo síðar um daginn með erlenda ferðamenn í hvalaskoðun.

Sumarið hefur farið vel af stað hvað varðar farþegafjölda og greinilegt að markaðsstarfið skilar árangri. Hvað hvalagengd varðar þá hafa höfrungar og hnúfubakar verið að sýna sig síðustu daga en hrefnugengd á þessari fornfrægu hrefnuveiðislóð hefur verið með minna móti og oft sem flotinn hefur þurft að redda sér á einu til tveimur dýrum. Það hljómar því annkannarlega að heyra talað um hrefnuveiðar á þessu svæði sem og öðrum. Hrefnuveiðar á Skjálfanda myndu undir eins stúta þessum nýja og mikilvæga atvinnuvegi Húsvíkinga, en í fyrra heimsóttu að talið er yfir 80 þúsund manns bæinn, flestir í tengslum við hvalaskoðun og hvalasafnið. HH



Bjössi við bryggju.


Bjössi á siglingu.


Bjössi á siglingu

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld