Fréttir Norðursiglingar
7. ágúst 2003
Flaggað í hálfa stöng á Húsavík vegna hrefnuveiða
Íslenska þjóðfánanum var flaggað í hálfa stöng við hafnaraðstöðu hvalaskoðunarbáta Norður-Siglingar á Húsavík í morgun eftir að fréttir bárust þess efnis, að hefja ætti tilraunaveiðar á hrefnu síðar í þessum mánuði. Heimir Harðarson hjá Norður-Siglingu sagði þá hafa flaggað í hálfa stöng vegna þess að með ákvörðun um að hefja hrefnuveiðar við Ísland, væri vegið að nýrri atvinnugrein sem hefur byggst upp á skömmum tíma, ekki síst á Húsavík. „Ekki eingöngu tel ég vegið að hvalaskoðun og ferðaþjónustu, heldur útflutningi Íslands í heild og ímynd landsins út á við í alþjóðasamfélaginu” segir Heimir. Norður-Sigling veitir 10 manns vinnu á ársgrundvelli en yfir sumartímann vinna á þriðja tug hjá fyrirtækinu. Gera má ráð fyrir að á Húsavík skipti afleidd störf mörgum tugum, þ.e. hjá hvalaskoðunarfyrirtækjum, söfnum, veitingastöðum, verslunum og þjónustu ýmiskonar. „Uppbygging ferðaþjónustustu hefur gjörbreytt húsvísku samfélagi og vegið upp áföll á öðrum sviðum, svo sem í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu. Þetta hefur t.a.m. gefið ungu fólki nýja von og vilja til að búa á staðnum og eða snúa þangað aftur eftir nám,” sagði Heimir að lokum. Frétt tekin af mbl.is

mbl.is/Hafþór Flaggað í hálfa stöng á Húsavík í dag.


























