Fréttir Norðursiglingar
10. september 2003
Efri bekkir Borgarhólsskóla í Flatey
Á föstudaginn sl. sigldu efstu bekkir Borgarhólsskóla, um 120 manns með Náttfara og Hauk út í Flatey. Tókst ferðin vel í alla staði og sáust m.a. hópar af Háhyrningum sem sýndu sig þokkalega. Góður byr var á útleiðinni og tóku skipverjar á Hauk, þar sem 10. bekkur var um borð upp fjögur segl (af fjórum). Handtökin voru útskýrð lítið eitt fyrir áhugasömum nemendum en þarna er um svokallaðan skonnortureiða að ræða sem algengur var á fiskiskútum við Norðurland í lok þarsíðustu aldar. Norður-Sigling vill koma á framfæri þakklæti til kennara og ekki síst nemenda Borgarhólsskóla sem voru til fyrirmyndar í sjóferðinni. HH

"Svífum seglum þöndum, svífum burt frá ströndum..." (mynd:Borgarhólsskóli)

Ein af nokkrum háhyrningavöðum sem sýndi sig í ferðinni. (mynd:Borgarhólsskóli)

"Kátir voru krakkar, á skonnortunni Hauk"



























