Fréttir Norðursiglingar
8. október 2003
Ísland kynnt í Rússlandi og Eystrasaltslöndunum
Dagana 28. sept til 05. okt var farin svokölluð “Roadshow” ferð íslenskra ferðaþjónustuaðila um Eystrasaltslöndin, Finnland og Rússland. Þar voru á ferð 12 Íslensk fyrirtæki úr röðum ferðaskrifstofa, hótelkeðja og afþreyingaraðila.
Norður-Sigling var þess heiðurs aðnjótandi að vera boðið sæti í hópnum. Kostnaður við slíka ferð er mikill og lögðu nokkur fyrirtæki úr Þingeyjarsýslum í púkkið með NS til að kynna ferðaþjónustu í héraði. Þau voru eftirtalin: Fosshótel Húsavík, Gamli Baukur Restaurant, Narfastaðir Farmhotel, Kaldbakskot smáhýsi, Árból gistiheimili og Saltvík hestaferðir. Að auki voru svo tvö önnur Norðlensk fyrirtæki með í för eða Sportferðir og KEA Hótelkeðjan.
Ferðasýningin fór þannig fram að fulltrúum ferðaskrifstofa og ferðaheildsala á viðkomandi markaðssvæði var boðið til kynningar og þar gafst þeim kostur á stuttum fundi við hvern þessara 12 aðila til að kynna sér það sem í boði er á Fróni.
Ferðin var farin af frumkvæði Icelandair og í fylkingarbrjósti fór finninn Pekka Mäkkinen sem er stjóri félagsins á viðkomandi svæði. Íslendingunum var í engu hlíft og prógrammið stíft þar sem ferðast var á flugvélum, rútum og þyrlum á milli borganna 6, þ.e. Vilnius, Riga, Tallinn, Helsinki, St.Pétursborgar og Moskvu. Þetta eru markaðir sem menn binda vonir við að vakni þegar fram líða stundir en Icelandair hefur nú á ný hafið flug til Helsinki sem auðveldar aðkomuna að Íslandi fyrir svæðið.
Við komuna til Keflavíkur nú á sunnudaginn var hópurinn sammála um að ferðin hafi verið árangursrík þó svo að menn hefðu raunhæfar væntingar þar sem slíkt brautryðjendastarf tekur jafnan nokkurn tíma áður en árangurs fer virkilega að gæta.
HH

Íslendingahópurinn ásamt fulltrúm Icelandair á svæðinu fyrir framan sendiherrabústaðinn í Moskvu.

Fulltrúar Norðurlands í ferðinni, Páll L. Sigurjónsson KEA hótelum, Marinó Sveinsson Sportferðum og Heimir Harðarson Norður-Siglingu.

Norðanmenn á sínu kynningarsvæði á veitingastaðnum Vanili í Moskvu þar sem nú standa yfir Íslenskir dagar.


























