Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

14. nóvember 2003

Knörrinn fær vélarupptekt í afmælisgjöf


Knörrinn, fyrsti bátur félagsins varð á þessu ári fertugur og hefur frá upphafi verið afar mikið happafley... segja sumir að því beri að þakka gullpeningi sem sitji undir frammastrinu. Hvað sem kann að vera til í því þá lifa slík eðalfley, sem þessir íslensku eikarbátar eru, oft margar vélar og sú í Knerrinum, amerísk Cummins var komin á tíma.
Þá er annað hvort að skipta algerlega um vél eða að "taka hana upp" eins og sagt er, en þá er m.a. skipt um slitfleti svo sem "slífar" og "stimpilhringi". Yfirumsjón með verkinu hefur Guðvarður Jónsson vélstjóri á Húsavík. -HH-



Varði (t.v.) og Bjössi Sör. (E.t.v. að brugga vélráð)


Á myndinni má greina m.a. "altenator", "Hörð Sigurbjarnar", "svinghjól", "hund" og "púllara"


Allt er fertugum fært... þó vissulega sé Knörrinn eftirbátur Hauksins á þessari mynd.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld