Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

9. janúar 2004

Annáll 2003


Árið sem var að líða er hið annasamasta í níu ára rekstrarsögu Norður-Siglingar. Félagið hefur ekki áður flutt jafnmarga farþega en þeir urðu vel á tuttugasta og fimmta þúsundið sumarið 2003.

Að sama skapi má segja að starfsmenn hafi ekki áður komið jafn margir og sterkir til leiks og þegar mestar annir voru störfuðu yfir tuttugu í hinum ýmsu störfum og hefur hópurinn ekki verið jafn stór áður.

Á fyrstu dögum vertíðarinnar bættist nýtt skip í flotann, Bjössi Sör sem er 30 tonna eikarbátur og var sá síðasti sem hin góðkunna skipasmíðastöð KEA hleypti af stokkunum árið 1975. Það var okkur sannkallaður happafengur að geta eignast þetta skip því fullyrða má að það er einstaklega vel úr garði gert að öllu leyti og væntum við þess að það eigi eftir að þjóna ferðafólki um langa framtíð.

Það má ef til vill kalla það kaldhæðni örlaganna að auk þess sem skipinu var haldið til fiskveiða áður fyrr var það einnig notað til hrefnudráps fyrir Norðurlandi. Það er hins vegar liðin tíð og mun ekki breytast þótt sjávarútvegsráðherra hafi heimilað svokallaðar vísindaveiðar á hrefnum þegar langt var liðið á hvalaskoðunarvertíðina.

Það er ekki ofmælt að sú ákvörðun hafi komið þeim í opna skjöldu sem byggja afkomu sína á hrefnuskoðun og óhætt er að fullyrða að hrefnuveiðarnar ógni hvalaskoðun í landinu og munu trúlega ganga af hvalaskoðun dauðri ef þeim verður haldið til streitu á næstu árum.

Skonnortan Haukur prýddi flota félagsins annað árið í röð. Skonnortan var notuð til hefðbundinnar hvalaskoðunar og þá að mestu leyti á vél eins og gefur að skilja en þar fyrir utan var hafin ferð sem heitir “Hvalir Lundar og Segl”. Í þeirri ferð var fuglaparadísin Lundey heimsótt, skoðaðir hvalir og dregin upp segl þegar við átti og mæltist þessi nýjung einkar vel fyrir.

Þar fyrir utan náðu miklum vinsældum meðal hópa Íslendinga ferðir á Hauk þar sem farið var í land í Flatey gengið um þá náttúruperlu sem hún er, grillað á bryggjunni og að því búnu siglt um hvalaslóð til Húsavíkur. Með siglingu á skonnortunni Hauk gefst Íslendingum tækifæri til að kynnast þessum stórmerka kafla menningarsögu þjóðarinnar.

Meðal nýjunga má og telja fræðsluferð með stóran hóp skólabarna úr Borgarhólsskóla á Húsavík. Siglt var á Náttfara og Hauk, seglin dregin upp og síðan unnu börnin úr upplifun sinni undir handleiðslu kennara.

Árshátíð starfsmanna Norður-Siglingar var óhefðbundin sem vænta mátti. Siglt var um þveran Skjálfanda og gengið á land í Rauðuvík, kynntur varðeldur og glaðst við skemmtan leiðsögumanna félagsins, etið og drukkið í skjóli hinna óviðjafnanlegu Kinnarfjalla.

Segja má að félagið hafi nú slitið barnsskóm sínum og sé þar með komið á unglingsaldurinn. Ársstörfin orðin tíu og eigendum er það fullljóst að rekstur sem þessi er mikilvægur á margan hátt og ekki hvað síst í byggðalegu tilliti. Starfsemin útheimtir mikla og víðtæka þekkingu, veitir fjölda ungra og vel menntaðra heimamanna kærkomna sumarvinnu. Það segir þó ekki alla söguna því svo víðtæk starfsemi sem þessi krefst mikillar markaðssetnigar auk viðhalds á fjórum skipum sem öll hafa gríðarlegt menningarsögulegt gildi að ógleymdu veitingahúsinu Gamla Bauk.

Nýjungar í markaðssetningu voru tvær á vegum félagsins og báðar í samvinnu við Flugleiðir. Sú fyrri var svokallað Roadshow þar sem starfsemin var kynnt í fyrsta skipti fyrir Rússum í Pétursborg og Moskvu í Helsinki í Finnlandi og í höfuðborgum Eystrasaltslandanna, Tallin, Vilnius og Riga. Vestan hafs var svo haldinn kynningarfundur fyrir starfsfólk Flugleiða í höfuðstöðvum þeirra í Baltimore.

Fleiri ferðir voru farnar utan til markaðssetningar en í September tók Norður-Sigling þátt í Vestnorden ferðakaupstefnunni í níunda sinn en þetta árið var hún haldin í Þórshöfn í Færeyjum. Nokkrum mánuðum fyrr átti félagið svo fulltrúa í ferð sem farin var til Kaupmannahafnar til að reyna að örva sölu á flugferðum Grænlandsflugs milli Köben og Akureyrar, en því miður var sú flugleið lögð af síðar á árinu.

Tónninn fyrir utanlandsferðum var reyndar snemma gefinn á árinu því á Þorra bárust þau tíðindi að Norður-Sigling hafi hlotið 3. verðlaun, svokölluð “Scandinavian Travel Award”. Markaðs og framkvæmdastjóri félagsins fóru í byrjun mars utan og tóku við viðurkenningunni á ferðakaupstefnunni ITB sem haldin er í Berlín ár hvert og er sú stærsta í heimi.

Segja má í heild að árið hafi verið félaginu hagstætt og vonast forráðamenn þess að vöxtur og viðgangur félagsins muni halda áfram um ókomna tíð.

Hörður Sigurbjarnarson


Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld