Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

10. febrúar 2004

Ávinningur af hvalaskoðun um 1,7 milljarðar


Bein efnahagsleg áhrif hvalaskoðunar í fyrra nema rúmum 1,7 milljörðum króna, samkvæmt greinargerð Geirs Oddssonar, auðlindafræðings og forstöðumanns Umhverfisstofnunar Háskóla Íslands, sem hann vann fyrir Hvalaskoðunarsamtök Íslands.
Fjöldi hvalaskoðunarferðamanna í fyrra var 72.220, samkvæmt greinargerðinni. Þessum ferðamönnum er skipt í fjóra flokka. Hvalaskoðunarferð er tilfallandi hjá 61%, hún er meginástæða ferðarinnar hjá 20%, hún er ákveðin við komu til landsins af 8% og Íslendingar eru 11% þessara ferðamanna.

Fram kemur að hvalaskoðun sé sá hluti ferðaþjónustunnar sem vex hraðast. Um 2.200 manns hafi farið í hvalaskoðun 1995 og síðan hafi þessum ferðamönnum fjölgað reglulega. Miðað við sömu þróun er áætlað að um 80.000 manns fari í hvalaskoðun í ár, tæplega 90.000 á næsta ári og fleiri en 100.000 árið 2007, en bein efnahagsleg áhrif 100.000 gesta yrðu nálægt 2,5 milljörðum króna á verðlagi ársins 2003.

Áætluð velta hvalaskoðunarfyrirtækja vegna sölu farmiða var tæplega 253 milljónir króna í fyrra.

Greinargerðin byggist á viðhorfskönnun Hjördísar Sigurgeirsdóttur meðal þátttakenda í hvalaskoðunarferðum sumarið 2002, sem unnin var af nemendum við Háskólann á Akureyri fyrir Ferðamálasetur Íslands, en 1.143 manns svöruðu könnuninni. Eins er stuðst við greinargerð Rögnvalds Guðmundssonar fyrir Hvalaskoðunarsamtök Íslands, Hvalaskoðun erlendra ferðamanna á Íslandi 1996-2003, en 7.565 manns tóku þátt í könnunum vegna rannsóknarinnar. Hvalaskoðunarsamtök Íslands söfnuðu síðan upplýsingunum um fjölda hvalaskoðunarferðamanna 2003.

Fréttin er tekin af www.skarpur.is sem aftur fékk fréttina á vef Morgunblaðsins, www.mbl.is.


Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunumSkráð gæðavottun frá Lloyds


Mynd

  • Náttfari að halda sér

Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld