Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

14. júní 2004

Steypireyðar og Hnúfubakar


Síðustu daga hafa stærstu dýr veraldarsögunnar, steypireyðar sýnt sig á Skjálfanda við mikinn fögnuð fjölmargra hvalaskoðunargesta Norður-Siglingar. Einnig hefur sést til hnúfubaka auk höfrunga og hnísa og ekki má gleyma hrafnreyðinni sem er jú minnst reyðarhvalanna og er betur þekkt undir nafninu "hrefna".

Steypireyðarnar hafa þó eðli málsins samkvæmt stolið senunni enda stærstu dýr veraldar fyrr og síðar. Fullvaxið dýr getur orðið allt að 200 tonnum að þyngd og vegur þá mun meira en fullhlaðin Boeing 757 með 200 farþega innanborðs. Hjarta Steypireyðarinnar er á stærð við VW bjöllu og tungan á við stóran sendiferðabíl. Ósæðarnar eru svo sverar að maður gæti synt inni í þeim, þ.e. lenti hann inni í hvalnum eins og henti greyið hann Jónas hérna um árið.

Þegar þetta er skrifað er Náttfari með á fimmta tug ferðamanna úti á flóanum að sýna þessi tignarlegu dýr og vonum við að stórhveli verði tíðir gestir þetta sumarið á Skjálfandaflóa. Við minnum Íslendinga ennfremur á hagstæð fjölskyldutilboð og að auðvelt er að bóka á netinu.

HH



Steypireyður við bóg Náttfara, þetta dýr var lengra en báturinn sem er 23 metrar og trúlega tvöfalt þyngri.


Steypireyðurin hefur breitt bak...


...og er mikill bógur.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld