Fréttir Norðursiglingar
28. júní 2004
Mikil gengd stórhvela á Skjálfanda
Undanfarnar tvær vikur hefur mikill fjöldi stórhvela sýnt sig á Skjálfanda. Steypireyðar hafa verið í stórum meiri hluta en hnúfubakar þó verið mjög fjölmennir líka ef að svo má segja. Sem dæmi má nefna að á laugardagskvöldið sl. Sáust um 10 Steypireyðar og 6 hnúfubakar ásamt tveimur tylftum höfrunga. Ekki var nóg með að þessar tvær stórkostlegu hvalategundir létu sjá sig heldur slóst langreyður í hópin nú í gær en hún er næst stærst allra hvala, á eftir steypireyðinni.
Myndir af Langreyðinni birtast fljótlega.



























