Fréttir Norðursiglingar
15. júlí 2004
Húsfyllir á frábærum tónleikum á Gamla Bauk
Færri komust að en vildu í gærkvöldi þegar söngkonan Ragnheiður Gröndal og hljómsveit hennar, Black Coffee, héldu tónleika í Skipasmíðastöðinni á Gamla Bauk. Ragnheiður og hljómsveit fluttu fjölbreytilegt og skemmtilegt prógramm sem samanstóð af gömlum blús og jazz "standörðum", frumsömdum lögum eftir Ragnheiði og þekktum innlendum og erlendum dægurperlum. Flutningur hljómsveitarinnar var frábær og söngur Ragnheiður virkilega góður. Hinir fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á tónleikana klöppuðu tónlistarmönnunum verðskuldað lof í lófa enda afbragðstónleikar þarna á ferð.
Fréttin er tekin af www.skarpur.is

Ragnheiður Gröndal syngur af innlifun í Skipasmíðastöðinni í gærkvöldi.


























