Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

24. júlí 2004

Skonnortan Haukur í opinbera heimsókn til Siglufjarðar


Í gærkvöld sigldi skonnortan Haukur af stað til Siglufjarðar þar sem skipið verður til sýnis og siglir með þá sem vilja um Siglufjörðinn.

Þetta er í annað sinn sem forsvarsmenn Síldarmynjasafnsins á Siglufirði fá skipið til Siglufjarðar af hátíðlegu tilefni en nú er haldið upp á 100 ára afmæli síldarævintýrisins.

Gott samstarf hefur tekist með Norður-Siglingu og Síldarmynjasafninu enda fást báðir aðilar við strandmenningu og menningartengda ferðaþjónustu og því snertifletirnir margir.

Meðfylgjandi myndir eru frá síðustu heimsókn Hauks til Siglufjarðar en það var tilefni opnunar nýrrar bátaskemmu safnsins og heimsóknar forseta Íslands, Ólafs Ragnars og krónprins Noregs Hákons Magnusar.

HH



Veðrið skartaði sínu fegursta á Siglufirði þann 29 júní sl. þegar skonnortan Haukur hafði viðdvöld á Siglufirði. Opnun nýrrar og glæsilegrar bátaskemmu var tilefni heimsóknarinnar og sést hún lengst til hægri á myndinni.


Hákoni og Ólafi voru sýnd horfin vinnubrögð síldarverkunar. T.v. sést Örlygur Kristfinnson safnstjóri Síldarmynjasafnsins.


Að lokum hélt Hákon blaðamannafund á bryggjusporðinum við Hauk og svo var stillt upp til ljósmyndunar. Frá vinstri, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra, Ólafur Ragnar, Hákon krónprins og svo Theodór Júlíusson frá Síldarmynjasafninu.


Að lokum var almenningi boðið að skoða Haukinn og nýttu sér það margir.


Áhöfn Hauksins fékk svo skemmtilega leiðsögn um safnið og er hér saman komin í andyri bátaskemmunnar ásamt Örlygi og starfsstúlku hans, og svo áhöfn Hauksins, Hörður, Hildur, Heimir, Þórunn, Helga og Stebbi.


Á leiðinni út úr Siglufirði gaf svo góðan byr og Haukurinn brunaði á tæplega 9 mílna ferð fyrir vindorkunni einni saman.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld