Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

25. ágúst 2004

Norður-Sigling undir merkjum Bláfánans


Hvalaskoðunarskip Norður-Siglinga eru fyrstu skipin á Íslandi sem sigla undir veifu Bláfánans til vitnis um góða viðleitni fyrirtækisins til að efla umhverfisvernd og umhverfisvitund.

Í yfirlýsingu sem komið hefur verið upp í skipum Norður-Siglingar segir m.a. að fyrirtækið muni koma hættulegum úrgangi svo sem olíu, málningu, rafhlöðum og rafgeymum og hættulegum efnum á þar til ætlaða losunarstaði og fylgja settum reglum um losun á skolpi. Þá mun fyrirtækið nota eftir föngum vörur og hráefni sem hægt er að endurvinna svo sem gler og pappír og forðast að nota einnota áhöld. Einnig segir í yfirlýsingunni að fyrirtækið muni nota vistvænar og umhverfismerktar vörur til viðhalds ef þær standa til boða, s.s. málningu, botnmálningu, leysiefni og hreinsiefni og stuðla að því að þjónustuaðilar geri hið sama.

Norður-Sigling mun einnig leggja sig fram um að fylgja reglum um náttúru- og umhverfisvernd, gæta sérstakrar varúðar á viðkvæmum svæðum svo sem varpstöðum fugla og hrigningarsvæðum og vera öðrum fyrirmynd og hvatning til öflugar umhverfisverndar. Þá verður siglingahraði og rekstur véla miðaður við að ná hámarksnýtingu á eldsneyti og jafnframt til að lágmarka losun mengandi efna. Fyrirtækið mun veita farþegum haldgóðar upplýsingar um lífríkið í hafinu, fiska og sjófugla, hvalina og mikilvægi þess að vernda hafið gegn mengun.

Norður-Sigling hefur með metnaðarfullum hætti varðveitt og viðhaldið bátum sem hafa sögulegt og menningarlegt gildi og er þetta að mati Landverndar markvert framtak til varðveislu menningararfsins.

Bláfáninn er alþjóðlegt merki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda. Bláfánaveifan er veitt frístundabátum og hvalaskoðunarskipum sem tileinka sér markmið Bláfánans. Liðlega 30 lönd eiga aðild að Bláfánanum. Samtökin Landvernd annast úthlutun og eftirlit með Bláfánanum á Íslandi og skipuleggja alla framkvæmd þar að lútandi í samstarfi við Fiskifélag Íslands, Félag umhverfis- og heilbrigðisfulltrúa, Hafnasambandið, Umhverfisstofnun, Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Samtök ferðaþjónustunnar.

Verkefnið Bláfáninn nýtur stuðnings samgönguráðuneytis, umhverfisráðuneytis og Samskipa.

Fréttin er tekin af www.landvernd.is



Hörður Sigurbjarnarson framkvæmdastjóri Norður-Siglinga við Bláfánaveifuna sem nú blaktir á skipum fyrirtækisins til vitnis um góða viðleitni þess í umhverfismálum.



Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld