Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

26. nóvember 2004

Nýtt flaggskip Húsvíkinga


Í gær kom Björg Jónsdóttir ÞH 321, sem Langanes ehf. á og gerir út, til heimahafnar á Húsavík í eftir fimm daga siglingu frá Gdynia í Póllandi þar sem miklar breytingar fóru fram á skipinu. Þar voru ýmsar breytingar og endurbætur gerðar á skipinu m.a. að ný brú, ný togspil og ný 4080 hestafla aðalvél af gerðinni Bergen Diesel sem skilar skipinu 15 sjómílum á klukkustund.

Skipið sem er ríflega 70 metra langt og 12 metra breitt er öflugasta fiskiskip Húsvíkinga til þessa.

Eigendur og starfsfólk Norður-Siglingar sendir áhöfn og eigendum Bjargar Jónsdóttur hamingjuóskir.
HH



Björgin við komuna til Húsavíkur.
mynd: Þórunn Harðar

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld