Fréttir Norðursiglingar
27. desember 2004
Annáll ársins 2004
10. árið í hvalaskoðun
Árið sem nú er rétt liðið var merkilegt ár fyrir margar sakir í sögu Norður-Siglingar. Aldrei hefur félagið flutt fleiri farþega um Skjálfandaflóa en þeir voru komnir á 28. þúsundið þegar vertíðinni lauk í lok september. Þá störfuðu um 30 manns hjá félaginu yfir háannatímann. Alls má gera ráð fyrir að um 33 þúsund farþegar hafi farið í hvalaskoðun frá Húsavík og var markaðshlutdeild Norður-Siglingar því rétt rúm 80%. Á vormánuðum var kláruð uppsetning og merkingar á munum tengdum sjósókn á Húsavík í Skipasmíðastöðinni við Gamla Bauk og þar var svo “Strandmenningarsetrið” formlega opnað með viðhöfn að viðstöddu fjölmenni í júní sl. Setrið hýsir einnig fræðslu um skonnortur Norðlendinga um aldamótin 1900 en Haukur, nákvæm eftirlíking norðlensku fiskiskonnortanna sigldi einimtt út í sitt þriðja sumar undir fullum seglum í fyrra. Áfram var unnið að hugmyndum um Garðarsstofu á árinu, og hefur NS unnið það í samvinnu við bæjaryfirvöld á Húsavík og kynnt fyrir þingmönnum kjördæmisins sem hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga. Göran Persson forsætisráðherra Svíþjóðar kíkti niður fyrir bakkann og hitti Norður-Siglingarmenn að máli í Júlí og hleypti það nýjum krafti í hugmyndirnar og er hönnun og hugmyndavinna nú í höndum fagaðila.
Á árinu veitti Landvernd Norður-Siglingu bláfánann sem er alþjóðleg viðurkenning. Bláfáninn hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis og er vitnisburður um góða viðleitni fyrirtækisins til að efla umhverfisvernd og umhverfisvitund.
Hvalaskoðunarvertíðin fór rólega af stað í byrjun maí en fljótlega fóru þó hlutirnir að gerast þegar stórhveli tóku að sýna sig reglulega í flóanum og ber þar helst að nefna steypireyðar sem urðu reglulegir gestir fram í byrjun ágúst. Hrefnur voru enn eitt sumarið með minna móti og sáust "ekki nema" í um 90% ferðanna. Stórhveli svo sem hnúfubakar, langreyðar og steypireyðar ásamt höfrungum voru því oft í aðalhlutverkum sem getur ekki talist slæmt.
Ferðin “Hvalir, Lundar og Segl” þar sem siglt var á skonnortunni Hauk sló nú fyrst verulega í gegn og var uppselt í flestar ferðir í sumar og því verður þeim fjölgað um helming á sumri komanda. Annars var áætlun í hvalaskoðun með þéttasta móti og brottfarir urðu allt að 14 á dag yfir háannatímann.
Í tilefni heimsóknar krónprins Noregs til Siglufjarðar vegna opnunar nýrrar bátaskemmu við Síldarminjasafnið, sigldi Haukur þangað í opinbera heimsókn til heiðurs Síldarminjasafninu og skipaði áhöfn og skip stóran sess í hátíðarhöldunum.
Tilraunir voru gerðar á árinu í samstarfi við Mýflug, Hvalasafnið og breska hvalasérfræðinga um hvalaskoðun úr lofti og tókust þær vel í verki og er ljóst að um algerlega nýja nálgun við hvalina að ræða. Einnig voru tilraunir með neðansjávarmyndartökur á stórhvelum gerðar um svipað leyti.
Á löngum ferli félagsins hafa nú rúmlega 4 þúsund ferðir verið farnar út á flóann og aldrei neitt alvarlegt komið upp á. Þann 12. ágúst tók Náttfari niðri á skeri við Lundey á Skjálfanda. Þrautþjálfuð áhöfn skipsins stóð sig frábærlega, engum varð af og engar skemmdir urðu á skipinu. Atvikinu er e.t.v. best lýst í einu af þeim þakkarbréfum sem NS barst frá farþegum bátsins.
Nú er 10. rekstrarár félagsins að baki og því má segja að félagið hafi slitið barnsskónum. Enn er margt ógert í ferðaþjónustu á Húsavík og í lok árs voru margar spennandi hugmyndir á teikniborði Norður-Siglingar sem skýrt verður frá jafnóðum hér á vefnum. Forráðamenn Norður-Siglingar líta framtíðana björtum augum og vonast til að vöxtur félagsins og viðgangur muni halda áfram um ókomna tíð. Að lokum vil Norður-Sigling færa viðskiptavinum sínum, samstarfsaðilum og öðrum velunnurum bestu þakkir fyrir frábært ár.
Heimir Harðarson



























