Fréttir Norðursiglingar
13. janúar 2005
Norður-Siglingu úthlutað lóð að Hafnarstétt 11
Á fundi Byggingarnefndar sl. Þriðjudag var ákveðið að Norður-Sigling fengi lóðina að Hafnarstétt 11. Þetta kemur sér afar vel þar sem brýn þörf er orðin fyrir aukna aðstöðu fyrir ýmsa starfsemi tengdri fyrirtækinu. Á lóðinni, sem Norður-Sigling fékk reyndar úthlutað árið 1999 en missti þar sem ekki var tímabært að framkvæma á henni þá, hafa ýmis mannvirki staðið í stöðuleyfi svo sem stigi sá er tengir fyrirtækið upp fyrir bakkann.
Í fundargerð byggingarnefndar sem sjá má á www.husavik.is segir eftirfarandi:
2.Erindi um lóðarúthlutun að Hafnarstétt 11
Úthlutun lóðarinnar var frestað á síðasta fundi byggingarnefndar 13. desember s.l. en þá höfðu tvær umsóknir um lóðina. Nefndin ákvað að auglýsa lóðina lausa til umsóknar.
Ekki bárust aðrar umsóknir um lóðina en komnar voru fyrir síðasta fund.
1. Gentle-Giants-Hvalaferðir ehf gerðu grein fyrir sínum hugmyndum um nýtingu lóðarinnar með greinargerð. Þar kemur m.a. að ætlunin er að hefja framkvæmdir í september 2005.
2. Norðursigling hyggst reisa um 120 m² steinsteypta byggingu á einni hæð á lóðinni í byrjun sumars. Þar verði hýstar snyrtingar fyrir ferðamenn, eldhúsaðstaða, geymsla og starfsmannaaðstaða fyrirtækisins. Síðar er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu á þaki þeirrar byggingar sem byggð verður í sumar, en hugmyndir þar að lútandi hafa ekki verið fullmótaðar.
Byggingarnefnd telur hugmyndir Hvalaferða óljósar, auk þess sem ekki er ætlunin að hefja framkvæmdir fyrr en að hausti. Hugmyndir Norðursiglingar eru hinsvegar skýrar og augljós þörf fyrirtækisins fyrir aukið athafnarými á hafnarsvæði. Byggingarnefnd leggur því til við bæjarstjórn að Norðursiglingu verði úthlutað lóðinni. Lóðarúthlutun falli úr gildi verði lóðarhafi ekki búinn að leggja fram fullnægjandi teikningar af húsi á lóðina fyrir lok maímánaðar 2005. Einnig falli lóðin til bæjarins hafi lóðarhafi ekki hafið framkvæmdir við húsbygginguna fyrir lok júní 2005.

Lóðin sem þarna er merkt með gulu er fyrirtækinu afar dýrmæt þar sem hún tengir starfsemina upp fyrir bakkan. Þarna munu m.a. rísa salerni fyrir farþega og aðra gesti. Vinnslueldhús fyrir Gamla Bauk og ýmis starfsmannaaðstaða.

Á lóðinni standa fyrir þessi mannvirki Norður-Siglingar og hefði það skaðað fyrirtækið verulega fá ekki lóðina.



























