Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

31. mars 2005

Norður-Sigling kaupir fornfrægt hús og breytir í íbúðir


Nú nýlega festi Norður-Sigling kaup á fornfrægu húsi í miðbæ Húsavíkur og þar standa nú yfir gagngerar breytingar. Húsið er tveggja hæða timburhús auk kjallara en það var reist sama ár og Húsavíkurkirkja eða 1907. Í húsinu rak á árum áður Bjarni Benediktsson krambúð og er húsið gjarnan nefnt eftir honum, þ.e. Bjarnabúð. Sumir þekkja húsið reyndar undir nafninu “Gamla Skóbúðin” enda hóf skóbúð Húsavíkur rekstur sinn þar snemma á síðust öld en sú góða búð starfar enn í dag en nú handan Garðarsbrautarinnar.

1997 var ákveðið að færa skildi húsið sem þá stóð þétt við Garðarsbrautina og myndaði skemmtilegt “hlið” inn í miðbæinn ásamt Bjarnahúsi (íbúðarhúsi Bjarna Ben) austan götunnar. Ekki fór það þó langt heldur einungis um þrjá metra til vesturs og einn til norðurs. Ásamt tilfæringum þessum var húsið gert upp og það með miklum sóma og er í raun sem nýtt í dag. Heiður af því átti Jón Ármann Árnason Ekki tókst að koma húsinu í rekstur eða notkun í kjölfar þessara dýru framkvæmda og hefur það staðið autt þangað til í dag. Nú standa hinsvegar yfir miklar breytingar á vegum Norður-Siglingar þar sem húsinu verður breytt í íbúðir. 3ja herbergja lúxusíbúð mun verða í risi hússins, tvær tveggja herbergja íbúðir á miðhæðinni og ein tveggja herbergja íbúð í kjallaranum. Allar mun íbúðirnar hafa hið eftirsótta útsýni yfir höfnina og vestur að Kinnarfjöllunum.

Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar til notkunar í byrjun Júní en það er Trésmiðjan Rein sem sér um verkið.

HH



Svona lítur húsið út í dag.


Hreiðar Olgeirsson vandvirkur að vanda


Hátt verður til lofts og vítt til veggja í risíbúðinni.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld