Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

4. apríl 2005

Mikil ánægja með þjónustu Norður-Siglingar


Síðastliðið sumar var gerð könnun um borð í bátum félagsins þar sem viðhorf farþega til Norður-Siglingar sem og málefna tengdum hvölum var kannað. Það var Elsa María Jakobsdóttir BS nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands sem hafði yfirumsjón með framkvæmdinni en rannsóknin var unnin í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga á Húsavík.

Niðurstöðurnar eru að langmestu leyti ákaflega jákvæðar og ekki síður mjög mikilvægar til hliðsjónar þegar kemur að því að bæta það í þjónustunni sem enn má betur fara. Í könnuninni kom m.a. fram að hátt hlutfall af farþegum Norður-Siglingar hefur siglt áður með fyrirtækinu og dæmi um að menn komi ár eftir ár til Húsavíkur til að fara í hvalaskoðun.

Í könnuninni var viðhorf farþega til hvalveiða kannað og þurfa niðurstöður þar varla að koma á óvart. 71% þeirra sem svöruðu voru “mjög sammála” fullyrðingunni “Ég er á móti hvalveiðum Íslendinga” og tæp 8% voru henni frekar sammála. Rúm 9% voru fullyrðingunni frekar eða mjög ósammála og rúm 12% svarenda voru hlutlaus í afstöðu sinni. Hafa ber í huga að hlutfall Íslendinga í ferðum fyrirtækisins er rétt um 10 prósent.

Töluvert var um að fólk skrifaði eitthvað frá eigin hjarta á könnunarblöðin og sást þá glögglega hve mikið hitamál hvalveiðar eru hjá gestum okkar.

Á þessum dögum er verið að klára endanlega úrvinnslu gagnanna og innan skamms verður þessu gerð betri skil hér á síðunni.

HH



Nils B. Hailer og Lára Sóley Jóhannsdóttir telja ánægða viðskiptavini um borð í bátana.


Um 80% þeirra sem svöruðu voru mjög á móti hvalveiðum en aðeins 9% kváðust hlynnt þeim.



Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld