Fréttir Norðursiglingar
29. maí 2005
Þýsk brúðhjón um borð í Knerrinum
Fyrr í vikunni silgdi Knörrinn með þýsk brúðhjón sem heimsóttu Ísland í brúðkaupsferðinni sinni. Þau nutu ferðarinnar þrátt fyrir nokkuð kalda norðlæga átt. Þegar komið var í land afhenti Nils, einn af leiðsögumönnum Norður-Siglingar, þeim gjöf til minningar um heimsóknina til Húsavíkur.
Við viljum óska þeim alls hins besta í framtíðinni.
KK





























