Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

16. júní 2005

Fjöldi brúðhjóna í ferðum Norður-Siglingar


Það virðist vera að Ísland sé í tísku sem “brúðkaupsferðaland” um þessar mundir. Síðastliðnar tvær vikur hefur Norður-Sigling tekið á móti fjórum brúðhjónum og eru mörg fleiri bókuð í sumar.

Starfsmenn Norður-Siglingar gera sitt besta til að gera daginn sem eftirminnilegastan fyrir hjónakornin og sem dæmi má nefna að í síðustu viku voru tvenn brúðhjón um borð. Þá var skálað í kampavíni, þeim gefnar litlar gjafir til minningar og óskað alls hins besta í framtíðinni.

Bátar Norður-Siglingar eru leigðir vegna ýmiskonar tilefna, jafnvel brúðkaupa. Haukur, sem er eina skonnorta landsins, silgdi undir fullum seglum sumarið 2003 með par sem lét gefa sig saman um borð. Athöfnin gekk með eindæmum vel og starfsfólk Norður-Siglinga hlakkar til að fá annað tækifæri til að spila brúðarvalsinn undir hinum tignarlegu Kinnafjöllum.

KK












Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld