Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

18. júní 2005

Brjálað að gera


Sjaldan eða aldrei hefur annríki verið meira hjá Norður-Siglingarliðinu en einmitt núna, því auk hinnar "hefðbundnu" útgerðar er ýmislegt annað í pípunum svo sem bygging á nýju 120 fermetra þjónustuhúsi og uppgerð gamalla húsa.

Hjá Norður-Siglingu starfa nú hátt í 30 manns en ef að iðnaðarmenn og aðrir sem að máli koma þessar vikurnar eru með taldir fer fjöldinn hátt á fimmta tuginn.

Betur verður greint frá ýmsum verkefnum og gangi þeirra hér á síðunni innan skamms.

HH



Eitt af vorverkunum er að koma "síldartunnublómakerjunum" fyrir en það gera "þau gömlu" Bjössi Sör og Hilla svo smekklega.


Mynjagripabúð Norður-Siglingar sem rekin er í "Vitanum" er komin upp en þar má fá ýmsa fallega og nytsamlega muni tengda og ótengda hvalaskoðun.


Trésmiðjan Rein vinnur að nýbyggingu þjónustuhússins "Svartabakka" og einnig að breytingum í Bjarnabúð. Hér er fríður hópur á þeirra vegum.


Og Himmi (Hilmar Gunnarsson), einn af nýliðunum klórar sér bara í hausnum.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld