Fréttir Norðursiglingar
5. ágúst 2005
Björgunaræfing í brælu
Síðastliðna tvo daga hefur vart viðrað til Hvalaskoðunar og hafa bátarnir legið bundnir við bryggju. Tíminn er þó nýttur vel og nú í morgun fór reynsluboltinn Hrólfur Þórhallson yfir öryggismálin með vakthafandi áhöfnum.
Veðurspáin er þó eitthvað betri fyrir allra næstu daga og framtíðarspáin fín og því gott í mannskapnum þrátt fyrir að bræla hafi raskað meiru nú þegar í Ágústmánuði en undanfarin ár.
HH

Hrólfur fer yfir neyðaráætlun um borð í Bjössa Sör

Áhafnirnar hlusta vel og vandlega á.

Svo var farið út fyrir hafnargarðinn og ýmis viðbrögð afð, svo sem "maður fyrir borð", sem og að leiðsögumönnunum/hásetunum var leyft að spreyta sig við stýrið.

Allir áhafnameðlimir Norður-Siglingar hljóta þjálfun í Björgunarskóla Sjómanna en nauðsynlegt er að halda reglulegar æfingar innan fyrirtækisins þar sem viðbrögð eru æfð. Ekki alls fyrir löngu var skip Björgunarskólans, Sæbjörg við bryggu á Húsavík og fóru þá nokkrir á vegum Norður-siglingar á endurmenntunarnámskeið.


























