Fréttir Norðursiglingar
11. ágúst 2005
Breskur sjávarlíffræðingur rannsakar hrefnur á Skjálfanda
Michael Tetley, breskur sjávarlíffræðingur sem sérhæfir sig í hrefnurannsóknum heimsótti Húsavík á dögunum. Rannsókn þessi er í samstarfi við Hvalasafnið á Húsavík, sem fær á hverju ári til sín erlenda sjálfboðaliða og sérfræðinga sem vinna við rannsóknir á hvölum og lífríki sjávar.
Á einungis tveimur vikum hefur Michael náð að greina ótrúlegt magn af gögnum og myndum sem starfsfólk Hvalasafnsins hefur safnað í svokölluðu “Photo ID” verkefni.
Síðastliðin 5 ár hefur starfsfólk frá Hvalasafninu siglt daglega með bátum Norður-Siglingar til þess að taka myndir af hvölum og höfrungum og skrá hegðun þeirra. Hvali og höfrunga má þekkja af sporðum þeirra, bakuggum og örum og sárum á bolum þeirra og því getur ´Photo ID’ verkefnið hjálpað til við að áætla fjölda dýra á svæðinu.
Hjálp Michael við verkefnið er núþegar ómetanleg en hann hefur einnig samþykkt að senda einn af mastersnemendum sínum til Húsavíkur á næsta ári til að halda áfram við rannsóknina.
‘Photo ID’ verkefnið bíður upp á mikla möguleika, ekki bara varðandi fjölda hvala á Skjálfanda heldur einnig á alþjóðlegum mælikvarða. Nú er mögulegt að senda myndir og gögn til alþjóðlegra gagnabanka sem sérhæfa sig í að greina myndir af hvölum og aðgreina einstaklinga. Þetta gæti því gefið okkur mun nánari upplýsingar um hvar dýrin sem hér eru að sumarlagi halda til á veturna.
Við hlökkum til að sjá Michael aftur á næsta ári og fylgjast með starfi hans í framtíðinni.
KK

Michael hefur greint úr gögnunum að a.m.k sex hnúfubakar haldi til á svæðinu.

Og a.m.k. sjö herfnur.

Hnýðinga (algengasta höfrungategund á Skjálfanda) er oft hægt að þekkja á örum á bakuggum þeirra og á litarhafti þeirra.

Staðsetning hvala á Skjálfanda sumarið 2004.
© Michael Tetley

Staðsetning hvala á Skjálfanda sumarið 2005 (júní og júlí). Það er greinilegur munur á staðsetningu hvalanna milli ára.
© Michael Tetley


























